Brúna tunnan   Prenta  Senda 

SmelltuLífrænn úrgangur

Veggspjald til útprentunar

Einkenni og ástand        

Brúna tunnan er eingöngu ætluð undir lífrænan úrgang sem settur er í lífræna maíspoka. Í tunnuna má setja lífrænan úrgang sem fellur til frá heimilum. Hér að neðan er listi sem hægt er að styðjast við. Æskilegt er að þrífa tunnuna reglulega til þess að viðhalda almennu hreinlæti. Tunnuna má þrífa með umhverfisvænni blautsápu og volgu vatni.

Í tunnuna má fara:

 Ávexti, Grænmeti, Brauðmeti og kornvörur, Eggjaskurn, Kjötleifar, Fiskur og fiskiafurðir, Pasta, Hrísgrjón, Tepoka, Kaffikorg, Sag undan smærri gæludýrum.

Í tunnuna má ekki fara:

 Ryksugupokar, Bleiur, Gler, Plast, Aska, Hunda- og kattasandur, Málmar, Ólífrænn úrgangur, Stærri bein t.d. eins og af lambalæri.

Hvað verður um þennan flokk í Flokkunarmiðstöð Íslenska Gámafélagsins?

    Lífræni úrgangurinn er losaður og fluttur beint á jarðgerðarsvæði fyrirtækisins. Notast er við nýstárlegar jarðgerðarvélar sem viðhalda kjörhitastigi og snúa lífræna úrganginum. Vélin flýtir fyrir náttúrulegu niðurbroti úrgangsins. Afurðin sem kemur úr vélinni er molta sem nota má sem áburð fyrir skógrækt eða garða. Vélarnar eru mismunandi að stærð en þær sem mest er notast við heita Envicont 400 D. Þær vélar geta skilað af sér allt að 400 tonnum af fullunni moltu á ári.

Hvað verður um afurðina?

    Moltan sem verður til við framleiðsluna er yfirleitt nýtt af sveitarfélaginu í þeim verkefnum sem þeir eru að sinna. Moltan er kærkomin áburður þar sem áburðarverð í heiminum hefur farið hækkandi. Sveitarfélögin hafa nýtt moltuna til uppgræðslu, áburðar í beð og til skógræktar.

Pokarnir:

  Nota verður sérstaka poka sem brotna niður, því annars er hætta á að moltuvélin eyðileggist eða afurðin verði fyrir skemmdum. Pokarnir sem notaðir eru fást m.a. hjá Íslenska Gámafélaginu og verslanir í heimabyggð þar sem brúna tunnan er notuð selja einnig poka sem uppfylla ýtrustu kröfur. Hafa verður í huga að pokarnir séu úr lífrænu efni t.d. maíspoka áþekkir þeim sem fylgja með hverri brúnni tunnu við afhendingu. Þeir pokar eru frá fyrirtækinu Bio Bags og eru framleiddir úr maíssterkju. Óskir þú eftir frekari upplýsingum um pokana hafðu þá samband.


Um flokkarann Flokkun Græna tunnan Panta tunnu
Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun