Græna tunnan   Prenta  Senda 

Smelltu

Veggspjald til útprentunar

Hugmyndafræði Grænu tunnunnar gengur út á að auðvelda fólki flokkun sorps og minnka þannig magn þess sorps sem fer til urðunar.

Í tunnuna má setja allan pappír heimilisins, bylgjupappa og pappa, plast, minni málmhluti (t.d. niðursuðudósir, málmlok af glerkrukkum) og fernur. Tunnan er losuð mánaðarlega.

Innihald Grænu tunnanna er flutt í endurvinnsluþorpið í Gufunesi þar sem starfsmenn Íslenska gámafélagsins aðgreina flokkana. Flokkarnir fara síðan mismunandi leiðir í endurvinnslu.


Ath.
Gler má alls ekki fara í tunnuna þar sem innihald tunnunnar er handflokkað og því getur brotið gler verið varasamt. Einnig getur glerið skemmt annað hráefni í tunnunni og gert það óhæft til endurvinnslu.

Rafhlöður mega ekki fara í tunnuna þar sem þær eru flokkaðar sem spilliefni. Sumar rafhlöður innihalda sýrur sem geta skemmt annað efni í tunnunni þannig að það verði óhæft til endurvinnslu.


Um flokkarann Flokkun Græna tunnan Panta tunnu
Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun